UM OKKUR

Um okkur

Fjölskyldufyrirtæki með rætur aftur til 1970.

Gröfutækni ehf var stofnað árið 1994 af bræðrunum Þórarni Inga og Herði Úlfarssonum. Rætur fyrirtækisins ná þó lengra aftur, því faðir þeirra hóf rekstur vinnuvéla um 1970 og um aldamótin tóku bræðurnir við öllum tækjum hans.

Sérsvið okkar hefur frá upphafi verið lagnavinna, einkum hita- og vatnslagnir. Sú reynsla hefur þróast yfir í endurnýjun og nýlagnir gatna fyrir sveitarfélög víða um land.

Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur vélamanna, vörubílstjóra, lagnamanna og aðstoðarmanna. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, öryggi og góð samskipti og skilum verkefnum á réttum tíma.