Gröfutækni ehf er fjölskyldufyrirtæki með yfir 30 ára reynslu af jarðvinnu, gatnagerð og lagnavinnu fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga um allt land. Vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma eru okkar aðalsmerki.
Gröfutækni ehf var stofnað árið 1994 af bræðrunum Þórarni Inga og Herði Úlfarssonum. Rætur fyrirtækisins ná þó lengra aftur, því faðir þeirra hóf rekstur vinnuvéla um 1970 og um aldamótin tóku bræðurnir við öllum tækjum hans.
Sérsvið okkar hefur frá upphafi verið lagnavinna, einkum hita- og vatnslagnir, og í dag eru endurnýjun og nýlagnir gatna stór hluti starfseminnar. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, öryggi og skil á réttum tíma.