FRÉTTIR

Ný heimasíða Gröfutækni komin í loftið

Við hjá Gröfutækni ehf erum stolt af því að kynna nýja heimasíðu fyrirtækisins. Hér má finna upplýsingar um þjónustu okkar, verkefni og tækjaflota. Einnig er hægt að hafa samband og óska eftir tilboði á einfaldan hátt.

Gröfutækni var stofnað árið 1994 af bræðrunum Þórarni Inga og Herði Úlfarssonum og hefur í rúm 30 ár sinnt jarðvinnu, gatnagerð og lagnavinnu fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga.

Fylgstu með okkur hér á fréttasíðunni og á Facebook. Þar deilum við fréttum af verkefnum og starfseminni.