FRÉTTIR

Lagnavinna í nýju íbúðahverfi á Suðurlandi

Undanfarnar vikur höfum við unnið að umfangsmikilli lagnavinnu í nýju íbúðahverfi á Suðurlandi. Verkið felur í sér gröft og lagningu fráveitu-, regnvatns- og ídráttarlagna ásamt frágangi á lóðum.

Verkefni af þessari stærð krefjast nákvæmrar verkefnastjórnunar og góðs samstarfs við verkkaupa og hönnuði. Við þökkum traustið og hlökkum til að ljúka frágangi hverfisins.